Litlu Landmannalaugar

Um ferðina

Reykjanesið býður upp á margar frábærar og fallegar gönguleiðir og fljótlegt er að skjótast þangað á bíl frá Höfuðborgarsvæðinu.

Jarðhitasvæðið vestan við Djúpavatn er falin perla, litrík, viðkvæm og falleg. Svæðið minnir að nokkru á Torfajökulssvæðið sunnan Landmannalauga en er smærra í sniðum og litríkir hryggirnir sem minna á Grænahrygg norður af Torfajökli gleðja augað. Þessi leirgil- og hryggir kallast því skrítna nafni Sogin og hafa mótast af jarðhita og eldvirkni í iðrum jarðar.

Leiðin er auðveld og hægt að fara frá Djúpavatni og ganga hring um svæðið með viðkomu við Spákonuvatn og Grænavatn. Gaman er að fara svo upp á Grænavatnseggjar og njóta stórfenglegs útsýnis yfir Djúpavatn, Reykjanesið allt og fjöllin norður af Reykjavík. Gönguleiðin er um 8 km og tekur um 4 tíma með góðum tíma til að njóta umhverfisins og taka góð nestishlé.

Við hittumst við bílastæðið við austurenda Djúpavatns, en þangað liggur holóttur malarvegur, Vigdísavallarvegur sem ekið er inn á skammt frá Kleifarvatni.
 
Vegurinn er fær öllum bílum að sumarlagi en best að aka rólega.

Lengd ferðar

4 tímar

Brottför

Bílastæðið við austurenda Djúpavatns. Hafið samband til þess að kanna möguleika á rútu.

Verð

15.990 krónur

Árstími ferða

Allan ársins hring

Hópastærð

2-30 manns

Erfiðleikastig

Auðvelt

Innifalið

Fræðandi og örugg leiðsögn með reyndum leiðsögumanni

sac

Taka meðferðis?

Gönguskó og föt (ekki bómull), vatnsheld föt ef veður breytist, nesti og vatn.

Bóka ferð

Aðrar gönguferðir

Áfram Gakk

Áfram Gakk 2023 Um ferðina Fyrir hverja? Þessi hópur er frábær fyrir þá sem vilja hafa góða fjalla rútínu í sínu lífi. Fullkomin blanda af miðlungs erfiðum fjöllum þar sem þú bætir fjallaformið jafnt og

Áfram Gakk!

Þetta er löng dagsferð eða um það bil 14-16 klukkustundir. Það eru 195 km á milli Reykjavíkur og Landmannalauga, eða um 3 klst í akstri. Brottför frá Reykjavík klukkan 7:00. Heimkoma um 22:00.
Gangan er um 17 km og tekur um 8 klukkutíma. Vöðum Jökulkvíslina 3-4 sinnum.

Gönguferð á Bjarnarfell með Fjallhöllu

Bjarnarfell

Bjarnarfell er 750m hátt fjall við Gullna hringninn, nálægt Langjökli og Jarlhettum. Frá toppi fjallsins er ægifagurt útsýni yfir bæði á grösugar sveitir og Langjökul. Verið alveg viss um að hafa myndavélina með í ferðina.

Cancellation Policy

afbókunarskilmálar afbókunarskilmálar Dagsferða Fyrir afbókanir sem berast að minnsta kosti 7 almanaksdögum fyrir áætlaða brottför er full endurgreiðsla Fyrir afbókanir sem berast 3 – 6 almanaksdögum fyrir áætlaða brottför er 50% endurgreiðsla. Fyrir afbókanir sem

Ganga Fimmvörðuháls með Fjallhalla Adventurers

Fimmvörðuháls

Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er krefjandi ganga, en ein vinsælasta gönguleið á Íslandi. Leiðin liggur milli jökla og eldfjalla og um einstaka náttúru í hálendi Íslands. Gengið er á landi sem myndaðist á víkingatíma eða fyrir árþúsundum.

Fjallaáskrift

Fjallaáskrift Kynningarverð, aðeins 3.990 kr. á mánuði skrá mig NÆST Á DAGSKRÁ: SKÁLAFELL Á HELLISHEIÐI 1. OKT Taktu skrefið áfram og upp á við í útivist sem ræktar líkama og sál. Eitt fjall á mánuði

Gönguferðir með Fjallhöllu

Gönguferðir

Gönguferðir með Fjallhalla Grænihryggur Náttúruundrið Grænihryggur í Landmannalaugum er ein helsta perla íslenskrar náttúru með magnaðri litadýrð. Ferð sem allir áhugamenn um íslenska útivist ættu að fara að minnsta kosti einu sinni. Nánar Fimmvörðuháls Gönguleiðin

Gönguferðir með Fjallhöllu

Gönguhóparnir

Maður er manns gaman og fátt er betra en að ganga á fjöll saman. Gönguhópar sem henta byrjendum jafnt sem lengra komnum!

Gönguparadísin Hornstrandir útfrá Hornbjargsvita með Fjallhalla Adventurers

Gönguparadísin Hornstrandir útfrá Hornbjargsvita

Gengið verður útfrá vitanum á Hornbjargi og því verður aðeins að bera léttan poka með nestið fyrir daginn og auka föt. Gist verður í hinum rómaða Hornbjargsvita í svefnpoka plássi, þar sem ágæt aðstaða er til eldamennsku. Gengið verður út frá honum með léttar birgðir.

Ganga á Grænihrygg með Fjallhalla Adventurers

Grænihryggur

Þetta er löng dagsferð eða um það bil 14-16 klukkustundir. Það eru 195 km á milli Reykjavíkur og Landmannalauga, eða um 3 klst í akstri. Brottför frá Reykjavík klukkan 7:00. Heimkoma um 22:00.
Gangan er um 17 km og tekur um 8 klukkutíma. Vöðum Jökulkvíslina 3-4 sinnum.

Grænjaxlar – 10 Tinda Trítl

Gönguhópur fyrir byrjendur, fullkominn fyrir alla þá sem vilja fjallgöngu í öruggu og hressu umhverfi. Þægileg kynning á fjallgöngum og útivist. Líkamsrækt sem tengir þig náttúrunni!

Grænjaxlar – 5 Fjalla Fjör

Gönguhópur fyrir byrjendur, fullkominn fyrir alla þá sem vilja fjallgöngu í öruggu og hressu umhverfi. Þægileg kynning á fjallgöngum og útivist. Líkamsrækt sem tengir þig náttúrunni!

Helpie FAQ

[helpie_notices group_id=’65’/] [helpie_faq group_id=’65’/]