Náttúruundrið Grænihryggur í Landmannalaugum er ein helsta perla íslenskrar náttúru með magnaðri litadýrð. Ferð sem allir áhugamenn um íslenska útivist ættu að fara að minnsta kosti einu sinni.
Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls er krefjandi ganga, en ein vinsælasta gönguleið á Íslandi og reglulega á listum yfir bestu gönguleiðir í heimi. Leiðin liggur milli jökla og eldfjalla og um einstaka náttúru í hálendi Íslands. Gengið er frá Skógarfossi að Þórsmörk 25 km leið.
Miðnætursól og útsýni sem er ekki hægt að lýsa, einstök upplifun sem er ekki hægt að upplifa neinstaðar annars staðar í heiminum. Snæfellsjökull er nokkuð þægilegt ferðafjall en öryggið er í fyrirrúmi og þess vegna þaulreyndir leiðsögumenn sem fylgja þér upp á topp.